Kristján markahæstur í Íslendingaslag

Góður leikur Kristjáns Arnar Kristjánssonar kom ekki í veg fyrir …
Góður leikur Kristjáns Arnar Kristjánssonar kom ekki í veg fyrir tap gegn Magdeburg. AFP

Kristján Örn Kristjánsson átti stórleik í liði Aix frá Frakklandi þegar það laut í lægra haldi gegn Gísla Þorgeiri Kristjánssyni, Ómari Inga Magnússyni og félögum í þýska liðinu Magdeburg í C-riðli Evrópudeildarinnar í dag.

Kristján Örn var markahæstur í liði Aix þegar hann skoraði sex mörk og lagði hann svo upp önnur fjögur fyrir liðsfélaga sína í Aix.

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk og lagði einnig upp tvö í sterkum 31:27 sigri.

Ómar Ingi komst ekki á blað í leiknum í dag. Magdeburg hefur unnið alla leiki sína í öllum keppnum á tímabilinu til þessa.

Fleiri Íslendingar voru í eldlínunni í keppninni í kvöld.

Viktor Gísli Hallgrímsson varði átta skot í marki GOG frá Danmörku í 46:30 risasigri liðsins gegn finnska liðinu Cocks í B-riðlinum.

Þá gerði svissneska liðið Kadetten, sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar, 28:28 jafntefli í hörkuleik gegn Pelister frá Norður-Makedóníu í D-riðlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert