17 marka sigur gegn U21-árs liði Tékka

Úr leiknum í morgun.
Úr leiknum í morgun. Ljósmynd/HSÍ

Íslenska B-landsliðið í handknattleik kvenna gerði sér lítið fyrir og vann gífurlega öruggan 35:18 sigur á U21-árs landsliði Tékklands þegar liðin mættust í lokaumferð æfingamóts í Cheb í Tékklandi í morgun.

Íslenska liðið byrjaði leikinn frábærlega og þá sér í lagi varnarlega. Tékkarnir skoruðu ekki sitt fyrsta mark fyrr en á 14. mínútu og staðan var þá 6 :1 Íslandi í vil. Það sem eftir lifði hálfleiks hélt liðið uppteknum hætti og spilaði vel í vörn og sókn.

Staðan í hálfleik var 15:9.

Seinni hálfleikurinn spilaðist að mörgu leyti eins og sá fyrri. Yfirburðir Íslands voru algjörir á vellinum og sá tékkneska liðið ekki til sólar. Niðurstaðan því afskaplega öruggur 17 marka sigur.

Mariam Eradze var valin besti leikmaður Íslands í dag.

Mörk Íslands: Auður Ester Gestsdóttir 7, Mariam Eradze 5, Elín Rósa Magnúsdóttir 5, Sara Dögg Hjaltadóttir 4, Berglind Þorsteinsdóttir 3, Elna Ólöf Guðjónsdóttir 3, Harpa María Friðgeirsdóttir 3, Lena Margrét Valdimarsdóttir 2, Birta Lind Jóhannsdóttir 2, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir.

Sara Sif Helgadóttir varði fimm skot og Saga Sif Gísladóttir varði einnig fimm skot í marki Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert