Heimir í þjálfarateymi KA-manna

Heimir Örn Árnason sem leikmaður KA fyrir þremur árum, við …
Heimir Örn Árnason sem leikmaður KA fyrir þremur árum, við hlið Sverre Jakobssonar. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Heimir Örn Árnason er kominn í þjálfarateymi karlaliðs KA í handknattleik og verður þar við hlið þeirra Jónatans Inga Magnússonar og Sverre Jakobsens út þetta keppnistímabili.

Heimir lék lengi með KA og er með mikla reynslu sem leikmaður og þjálfari, en hann hefur auk þess verið einn af fremstu handknattleiksdómurum landsins undanfarin ár.

KA hefur gengið illa að undanförnu en eftir  tvo sigra í byrjun Íslandsmótsins hefur Akureyrarliðið tapað sjö af síðustu átta leikjum sínum í úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert