Framlengdi í Þýskalandi

Oddur Gretarsson á að bakki 36 A-landsleiki.
Oddur Gretarsson á að bakki 36 A-landsleiki. Ljósmynd/Balingen

Oddur Gretarsson hefur framlengt samning sinn við þýska handknattleiksfélagið Balingen. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í gær.

Oddur, sem er 31 árs gamall, hefur leikið með Balingen frá árinu 2017 en samningur hans gildir út keppnistímabilið 2023.

Hann er uppalinn á Akureyri og á að baki 36 A-landsleiki fyrir Ísland en hann hefur ekkert leikið með Balingen á tímabilinu vegna meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert