Aðalsteinn í úrslitaeinvígið

Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten. Ljósmynd/Kadetten

Handknattleiksþjálfarinn Aðalsteinn Eyjólfsson er kominn með lið Kadetten í úrslitaeinvígið um svissneska meistaratitilinn eftir sigur á Amicitia Zürich á heimavelli í dag, 28:21.

Kadetten vann þar með rimmuna 3:0 og mætir annaðhvort Pfadi Winterthur eða Wacker Thun í úrslitunum en leikur þeirra stendur nú yfir og staðan í því einvíg er 1:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert