Töpuðu heima í fyrsta úrslitaleiknum

Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði fjögur mörk í kvöld.
Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði fjögur mörk í kvöld. Ljósmynd/Skövde

Bjarni Ófeigur Valdimarsson og félagar hans í Skövde máttu sætta sig við  tap á heimavelli gegn Ystad IF, 28:30, í fyrsta úrslitaleik liðanna um sænska meistaratitilinn í handknattleik sem fram fór í Skövde í kvöld.

Bjarni skoraði fjögur mörk úr átta skotum í leiknum en þrjá sigra þarf til að verða sænskur meistari. Annar leikur liðanna fer fram í Ystad á laugardaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert