Þrjár efnilegar semja við Hauka

Thelma Melsteð er dóttir Hauka-goðsagnarinnar Hörpu Melsteð.
Thelma Melsteð er dóttir Hauka-goðsagnarinnar Hörpu Melsteð. Ljósmynd/Haukar

Handknattleikskonurnar Emilía Katrín Matthíasdóttir, Rakel Oddný Guðmundsdóttir og Thelma Melsteð hafa allar framlengt samninga sína við Hauka og munu því leika með kvennaliði félagsins næstu ár.

Allar eru þær hluti af 2004 árgangi félagsins sem vann bikar- og deildarmeistaratitil á liðnu tímabili. Þær hafa allar verið hluti af meistaraflokki félagsins síðustu tímabil og hafa jafnt og þétt fengið æ fleiri mínútur til þess að sanna sig.

Allar þrjár eiga þær landsleiki fyrir yngri landslið Íslands að baki. Rakel og Thelma eru núna hluti af U18-ára landsliði Íslands sem fer út til Norður-Makedóníu í lok júlí til að taka þátt á HM U18-ára landsliða og því mikið um að vera hjá þeim í sumar.

„Það er mikið gleðiefni að ungir og efnilegir leikmenn félagsins framlengi samninga sína. Það er því með sanni hægt að segja að framtíðin sé björt á Ásvöllum,“ sagði meðal annars í tilkynningu frá handknattleiksdeild Hauka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert