Halldór á leiðinni til Danmerkur

Halldór Jóhann Sigfússon á hliðarlínunni hjá Selfyssingum.
Halldór Jóhann Sigfússon á hliðarlínunni hjá Selfyssingum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Handknattleiksþjálfarinn Halldór Jóhann Sigfússon er að yfirgefa Selfyssinga þar sem hann er á leið í starf í danska handboltanum.

Vísir skýrir frá þessu í dag, samkvæmt öruggum heimildum, en Halldór hefur stýrt Selfyssingum undanfarin tvö tímabil og á eitt ár eftir af samningi sínum.

Handbolti.is segir jafnframt að samkvæmt heimildum verði Halldór annar tveggja þjálfara karlaliðs Tvis Holstebro sem leikur í dönsku úrvalsdeildinni, og verði jafnvel kynntur þar til leiks á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert