Yfirburðasigur ÍBV á Herði

ÍBV skellti nýliðunum í dag.
ÍBV skellti nýliðunum í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

ÍBV vann afar auðveldan 18 marka sigur á Herði, 43:25, í Olísdeild karla í handbolta í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í dag.

Nýliðarnir komust aldrei almennilega inn í leikinn en staðan í hálfleik var 24:15. ÍBV fer upp að hlið Fram með sigrinum en liðið er með sex stig eftir fjóra leiki. Hörður er á botninum án stiga.

Elmar Erlingsson var atkvæðamestur í liði Eyjamanna en hann skoraði heil 11 mörk. Rúnar Kárason kom næstur þar á eftir með 9 mörk.

Endijs Kusners og Daníel Wale Adeleye skoruðu fimm mörk hvor fyrir gestina. Jón Ómar Gíslason og Noah Virgil Bardou skoruðu fjögur mörk hvor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert