KA keyrði yfir nýliðana

Haraldur Bolli Heimisson sækir að marki ÍR. Dagur Sverrir Kristjánsson …
Haraldur Bolli Heimisson sækir að marki ÍR. Dagur Sverrir Kristjánsson er til varnar. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

KA vann afar sannfærandi 38:25-heimasigur á nýliðum ÍR í Olísdeild karla í handbolta í kvöld.

KA-menn voru með undirtökin allan tímann og var staðan í hálfleik 19:12. Nýliðarnir voru ekki líklegir til að jafna í seinni hálfleik og Akureyringar fögnuðu öruggum sigri.

KA er í fimmta sæti með fimm stig og ÍR í níunda sæti með fjögur eftir fimm leiki.

Mörk KA: Dagur Gautason 10, Gauti Gunnarsson 9, Einar Rafn Eiðsson 8, Hilmar Bjarki Gíslason 3, Skarphéðinn Ívar Einarsson 3, Haraldur Bolli Heimisson 2, Dagur Árni Heimisson 2, Patrekur Stefánsson 1.

Varin skot: Nicholas Satchwell 21.

Mörk ÍR: Arnar Freyr Guðmundsson 6, Eyþór Wage, Viktor Sigurðsson 4, Úlfar Hrafn Kjartansson 3, Dagur Sverrir Kristjánsson 3, Róbert Snær Örvarsson 2, Bjarki Steinn Þórisson 1, Hrannar Ingi Jóhannsson 1, Sveinn Brynjar Agnarsson 1.

Varin skot: Ólafur Rafn Gíslason 5, Rökkvi Steinunnarson 5.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert