Sátt við hvernig við brugðumst við

Rut var sátt með helgina.
Rut var sátt með helgina. mbl.is/Óttar Geirsson

„Ég segi allt ljómandi gott, þetta var frábær liðsigur hérna í dag og frábært að klára seinni leikinn svona,“ sagði Rut Arnfjörð Jónsdóttir eftir góðan 33:24 sigur á Ísrael á Ásvöllum í dag þegar leikin var seinni leikur liðanna í forkeppni um sæti á HM kvenna á næsta ári.  

„Við vissum alveg að þær hefðu skoðað okkar leik á laugardaginn en mér fannst við byrja leikinn svo vel, klúðruðum reyndar nokkrum dauðafærum og þetta hefði annars litið mun betur út ef við hefðum skorað úr þeim en við vorum þó að koma okkur í þessi dauðafærin og vörnin stóð sig vel svo ég er mjög sátt við hvernig við brugðumst við því sem gekk illa í leiknum á laugardaginn.“

Rut var mjög sátt við helgina.  „Ég get alveg sagt að við höfum lært mikið af þessum leikjum, bætt mikið í okkar leik – líka frá leiknum í gær - hvort sem er í vörn eða sókn enda fengum við hraðaupphlaupin í dag svo ég mjög sátt við okkar leik í dag.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert