Tíundi sigurinn í röð

Bjarki Már Elísson í leik með Veszprém.
Bjarki Már Elísson í leik með Veszprém. Ljósmynd/Eurohandball

Bjarki Már Elísson og samherjar í Veszprém héldu í gærkvöld áfram sigurgöngu sinni í ungversku 1. deildinni í handknattleik.

Þeir unnu stórsigur á liðinu í fjórða sæti deildarinnar, Csurgoi, 44:28, og Bjarki Már skoraði fjögur mörk í leiknum.

Veszprém hefur unnið alla 10 leiki sína í vetur og er með 20 stig. Pick Szeged er einnig með 20 stig en hefur leikið einum leik meira. Tatabánya er með 16 stig, Csurgoi 13, Ferencváros 12 og Balatonfüredi 12 stig í næstu sætum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert