Ásgeir hafði betur í Íslendingaslag

Ásgeir Snær Vignisson í leik með ÍBV gegn Val á …
Ásgeir Snær Vignisson í leik með ÍBV gegn Val á síðasta tímabili. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Helsingborg vann öruggan 30:23-sigur á Skövde þegar liðin áttust við í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla í kvöld.

Ásgeir Snær Vignisson skoraði tvö mörk fyrir Helsingborg.

Þá skoraði Bjarni Ófeigur Valdimarsson fimm mörk fyrir Skövde.

Sigurinn var kærkominn fyrir Helsingborg þar sem liðið er í harðri fallbaráttu og fór upp í 12. sæti af 14 liðum.

Helsingborg er nú með níu stig, einu stigi frá öruggu sæti. Skövde er áfram í 6. sæti með 13 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert