Kristján ekki með gegn Val?

Kristján Örn Kristjánsson í leik með íslenska landsliðinu.
Kristján Örn Kristjánsson í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Árni Sæberg

Ólíklegt er að Kristján Örn Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, leiki með franska liðinu Aix annað kvöld þegar það tekur á móti Valsmönnum í Evrópudeildinni.

Kristján hefur glímt við meiðsli á ökkla og misst af síðustu leikjum Aix í Frakklandi og síðasta leik liðsins í Evrópudeildinni. Hann sagði við Vísi í dag að meiðslin væru minniháttar en ólíklegt væri að hann myndi ná leiknum gegn Val.

Aix og Valur eru jöfn að stigum í öðru og þriðja sæti B-riðils Evrópudeildarinnar með 4 stig hvort. Flensburg er með 6 stig á toppnum en Ferencváros og Ystad IF eru með 2 stig hvort og Benidorm er án stiga þegar leiknar hafa verið þrjár umferðir af tíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert