Sandra og samherjar í átta liða úrslit

Sandra Erlingsdóttir skoraði þrjú mörk í kvöld.
Sandra Erlingsdóttir skoraði þrjú mörk í kvöld. mbl.is/Óttar Geirsson

Sandra Erlingsdóttir landsliðskona í handknattleik og samherjar hennar í Metzingen komust í kvöld í átta liða úrslit þýsku bikarkeppninnar.

Metzingen tók á móti Thüringer á heimavelli og sigraði í hörkuleik, 34:32. Sandra skoraði þrjú mörk í leiknum.

Góður sigur Metzingen sem er í tíunda sæti þýsku deildarinnar en Thüringer er þar í öðru sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert