Mætti átta ára gamall með hníf í skólann

„Ég man mjög vel eftir átta ára aldursárinu mínu,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, í Dagmálum, frétta- og menningarlífsþætti Morgunblaðsins.

Björgvin Páll, sem er 37 ára gamall, er einn besti markvörður sem Ísland hefur alið af sér.

Hann átti erfiða æsku og glímdi við mikla vanlíðan á sínum yngri árum en hann var að gefa út barnabók sem ber heitið Barn verður forseti á dögunum þar sem hann rifjar upp stór augnablik í bæði barnæsku sinni og fullorðinslífi.

„Ég fór inn á BUGL, Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, þegar ég var átta ára gamall,“ sagði Björgvin.

„Ástæðan fyrir því að ég fór inn á BUGL var sú að ég var tekinn með hníf á mér í skólanum,“ sagði Björgvin Páll meðal annars.

Viðtalið við Björgvin Pál í heild sinni má nálgast með því að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert