Sigurður í tveggja leikja bann

Sigurður Bragason stýrir ekki ÍBV í næstu tveimur leikjum.
Sigurður Bragason stýrir ekki ÍBV í næstu tveimur leikjum. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Sigurður Bragason, þjálfari kvennaliðs ÍBV í handknattleik, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd HSÍ vegna „mjög grófrar ódrengilegrar hegðunar“ hans eftir viðureign Eyjakvenna og Vals um fyrri helgi.

Sigurður var sakaður um að hafa slegið í afturenda starfsmanns Vals eftir leikinn og í framhaldi af því látið óviðeigandi orð falla ásamt bendingum til leikmanns Valsliðsins.

Næstu tveir leikir ÍBV eru útileikur gegn Haukum í úrvalsdeildinni á föstudagskvöldið og undanúrslitaleikur í bikarkeppninni gegn Selfossi í Laugardalshöll næsta miðvikudagskvöld.

Sjá má ítarlega umfjöllun um úrskurðinn á vef HSÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert