Slegið í rassinn eða vinalegt klapp?

Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV.
Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Valsmenn hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna atviks sem átti sér stað í leik ÍBV og Vals í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, þann 28. febrúar.

Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV, var úrskurðaður í tveggja leikja bann af aganefnd HSÍ þann 7. mars vegna „mjög grófrar ódrengilegrar hegðunar“ hans í garð starfsmann Valsliðsins.

„Ágreiningur hefur verið með Val og ÍBV um þau atvik sem urðu í lok leiksins,“ segir í tilkynningu Valsmanna.

Niðurlægjandi og ósæmileg hegðun

„Niðurstaða aganefndar var sú að ekki væru næg sönnunargögn til staðar til að úrskurða um hvort þjálfari ÍBV hafi slegið starfsmann Valsliðsins tvívegis í rassinn eða hvort um stroku yfir bakið og vinalegt klapp tvívegis á mjöð/mjaðmakúlu hafi verið að ræða eins og ÍBV hélt fram í sinni greinargerð.

Að mati Vals gildir þetta þó einu enda felur hvort tveggja í sér niðurlægjandi og ósæmilega hegðun. Slík framkoma á ekki að líðast. Það hefur því valdið Val miklum vonbrigðum að ÍBV skuli ekki hafa tekið ábyrgð á og afstöðu gegn háttseminni í opinberri umræðu um málið,“ segir meðal annars í tilkynningu Valsmanna.

Yfirlýsing Vals:

Knattspyrnufélagið Valur vill koma eftirfarandi á framfæri vegna eftirmála leiks Vals og ÍBV í meistaraflokki kvenna í handknattleik 25. febrúar síðastliðinn.

Valur fordæmir þá ósæmilegu og niðrandi hegðun sem þjálfari ÍBV sýndi af sér að leik loknum. Var hegðunin með þeim hætti að framkvæmdastjóri HSÍ taldi rétt að vísa málinu til aganefndar HSÍ til umfjöllunar. Ágreiningur hefur verið með Val og ÍBV um þau atvik sem urðu í lok leiksins. Niðurstaða aganefndar var sú að ekki væru næg sönnunargögn til staðar til að úrskurða um hvort þjálfari ÍBV hafi slegið starfsmann Valsliðsins tvívegis í rassinn eða hvort um stroku yfir bakið og vinalegt klapp tvívegis á mjöð/mjaðmakúlu hafi verið að ræða eins og ÍBV hélt fram í sinni greinargerð. Að mati Vals gildir þetta þó einu enda felur hvort tveggja í sér niðurlægjandi og ósæmilega hegðun. Slík framkoma á ekki að líðast. Það hefur því valdið Val miklum vonbrigðum að ÍBV skuli ekki hafa tekið ábyrgð á og afstöðu gegn háttseminni í opinberri umræðu um málið.

Knattspyrnufélagið Valur telur aftur á móti að nú sé mál að linni hvað framangreindan ágreining varðar og hyggst ekki áfrýja niðurstöðu aganefndar HSÍ heldur horfa fram á veginn. Félagið þakkar þann stuðning sem önnur íþróttafélög hafa sýnt í þessu máli. Félagið vill að stigið verði fastar til jarðar ef sambærileg mál koma upp svo hægt sé að útrýma hegðun sem þessari úr hreyfingunni fyrir fullt og allt.

Knattspyrnufélagið Valur bindur vonir við að umfjöllun og samstaða annarra íþróttafélaga í þessu máli hafi góð áhrif til framtíðar. Einnig að hún komi í veg fyrir að sambærileg mál endurtaki sig innan íþróttahreyfingarinnar.

Látum aldrei kappið bera fegurðina ofurliði og stefnum ávallt hærra. 

Reykjavík 27. mars 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert