Óðinn skoraði átta og Kadetten skellti Ystad

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta mörk gegn Ystad.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta mörk gegn Ystad. mbl.is/Óttar Geirsson

Óðinn Þór Ríkharðsson og Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfari eru komnir með lið sitt Kadetten frá Sviss í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar í handbolta eftir góðan útisigur á Ystad í Svíþjóð í dag, 27:25.

Kadetten vann fyrri leikinn á sínum heimavelli, 38:32, og vann því einvígið samtals með átta marka mun. Kadetten hefði verið mótherji Valsmanna ef þeir hefðu unnið einu marki stærri sigur á Ystad í lokaumferð riðlakeppninnar á dögunum.

Óðinn var að vanda markahæstur í liði Kadetten og  skoraði átta mörk í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert