Íslendingaliðið í erfiðum málum

Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði þrjú.
Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði þrjú. Ljósmynd/Viktor Ljungström

Skara mátti þola 21:27-tap á útivelli gegn Höör í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum sænska handboltans í kvöld.

Liðið sem vinnur þrjá leiki kemst í undanúrslit. Höör er því komið í góð mál með 1:0-forystu en liðið endaði í öðru sæti úrvalsdeildarinnar í vetur á meðan Skara endaði í sjöunda sæti, níu stigum neðar.

Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Skara og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir bætti við tveimur til viðbótar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert