Viggó með langan samning

Viggó Kristjánsson.
Viggó Kristjánsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Viggó Kristjánsson landsliðsmaður í handknattleik hefur skrifað undir nýjan samning við þýska félagið Leipzig.

Nýi samningurinn gildir til ársins 2027 og var tilkynnt um hann  frammi fyrir 4.000 áhorfendum áður en leikur Leipzig og Gummersbach hófst um fimmleytið í dag.

Viggó hefur átt góðu gengi að fagna með Leipzig í vetur, sérstaklega eftir að Rúnar Sigtryggsson tók við þjálfun liðsins, en hann er fjórði markahæsti leikmaður deildarinnar með 135 mörk. Hann slasaðist í síðustu viku og leikur ekki meira á þessu keppnistímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert