KA framlengir við efnilegan leikmann

Skarphéðinn Ívar Einarsson og Haddur Júlíus Stefánsson, formaður handknattleiksdeildar KA.
Skarphéðinn Ívar Einarsson og Haddur Júlíus Stefánsson, formaður handknattleiksdeildar KA. Ljósmynd/KA

Skarphéðinn Ívar Einarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn félaginu til sumarsins 2025.

Skarphéðinn Ívar er aðeins 17 ára gamall en hefur þrátt fyrir það verið í stóru hlutverki í liði KA á yfirstandandi tímabili eftir að komið sterkur inn í það á tímabilinu á undan.

„Það eru frábærar fréttir að við höldum Skarpa áfram innan okkar raða en hann er einn allra efnilegasti leikmaður landsins.

Það er ekki nokkur spurning að framtíðin er björt hjá okkar manni og erum við afar spennt að fylgjast áfram með framgöngu hans í gula og bláa búningnum næstu árin,“ sagði meðal annars í tilkynningu frá handknattleiksdeidl KA.

Auk þess að leika með meistaraflokksliði KA er hann fastamaður hjá yngri landsliðum Íslands, þar sem hann vann til að mynda silfurverðlaun með U19-ára liðinu á Sparkassen-mótinu í Þýskalandi í lok desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert