Geta enn haldið sér í deildinni

Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði fimm mörk í kvöld.
Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði fimm mörk í kvöld. mbl.is/Óttar

Díana Dögg Magnúsdóttir og samherjar í Zwickau eiga ágæta möguleika á að halda sæti sínu í efstu deild þýska handboltans eftir heimasigur á Göppingen, 26:23, í fyrri umspilsleik liðanna í kvöld.

Zwickau varð næstneðst í 1. deildinni og Göppingen hafnaði í öðru sæti 2. deildar og því leika liðin tvo leiki, heima og heiman, um sætið.

Díana, sem er  fyrirliði Zwickau, skoraði fimm mörk í leiknum í kvöld en liðið fer með þriggja marka forskot í seinni leikinn í Göppingen á laugardaginn. Samanlögð úrslit tveggja leikja ráða úrslitum í einvíginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert