Kristján skoraði sögulegt mark

Kristján Örn Kristjánsson leikur með Aix.
Kristján Örn Kristjánsson leikur með Aix. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristján Örn Kristjánsson landsliðsmaður í handknattleik náði sögulegum árangri í frönsku 1. deildinni á dögunum þegar lið hans mætti Istres.

Hann skoraði þá sitt 300. mark fyrir félagið í deildinni en af þeim hafa 92 komið í 22 leikjum á þessu tímabili. Kristján er núna í 42. sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar, hefur verið mun ofar undanfarin ár en í vetur missti hann af sex leikjum liðsins sem er í 8. sæti af 16 liðum, 26 stigum á eftir toppliði París SG.

Félag hans fagnaði þessum áfanga með honum á samfélagsmiðlum sínum:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert