Íslandsbikarinn illa farinn (mynd)

Íslandsmeistarabikararnir þegar allt lék í lyndi.
Íslandsmeistarabikararnir þegar allt lék í lyndi. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Íslandsmeistarar ÍBV í handknattleik karla hafa farið mikinn í fagnaðarlátum eftir að hafa tryggt sér titilinn með sigri í oddaleik gegn Haukum í síðustu viku.

Eins og mbl.is greindi frá fór Íslandsmeistarabikarinn eitthvað á stjá um síðustu helgi, þegar einkar kátt var á hjalla í Vestmannaeyjum, og týndist.

Samkvæmt heimildum mbl.is gekk bikarinn manna á milli um helgina þar sem fjöldi bæjarbúa fékk að lyfta honum.

Bikarinn hefur þolað umganginn illa og má muna sinn fífil fegurri eins og sjá má á meðfylgjandi mynd:

Íslandsmeistarabikarinn leit svona út í vikunni.
Íslandsmeistarabikarinn leit svona út í vikunni. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert