Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik, hefur valið 21 leikmann fyrir leiki gegn Lúxemborg og Færeyjum í undankeppni EM 2024 í byrjun október.
EM 2024 kvenna verður haldið í Austurríki, Sviss og Ungverjalandi í lok næsta árs.
Íslenska liðið hefur undankeppni EM á heimaleik gegn Lúxemborg 11. október að Ásvöllum. Þar verður ókeypis aðgangur í boði Boozt.
Ísland heldur svo til Færeyja og mætir þar heimakonum þann 15. október.
Mikill fjöldi þaulreyndra leikmanna er í hópnum í bland við óreyndari leikmenn. Einn leikmaður liðsins hefur ekki enn spilað A-landsleik. Það er stórskyttan Katla María Magnúsdóttir, leikmaður Selfoss.
Leikmannahópurinn:
Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, EH Aalborg (43/1)
Hafdís Renötudóttir, Valur (44/2)
Sara Sif Helgadóttir, Valur (7/0)
Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, Silkeborg-Voel (39/58)
Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (10/5)
Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV (63/126)
Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV Sachsen Zwickau (38/43)
Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (6/5)
Elín Rósa Magnúsdóttir, Valur (3/10)
Elísa Elíasdóttir, ÍBV (4/0)
Hildigunnur Einarsdóttir, Valur (94/103)
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Skara HF (5/7)
Katla María Magnúsdóttir, Selfoss (0/0)
Katrín Tinna Jensdóttir, Skara HF (10/2)
Lilja Ágústsdóttir, Valur (8/2)
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss (32/49)
Sandra Erlingsdóttir, TuS Metzingen (20/82)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (75/56)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (62/114)
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur (32/21)
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (121/352)