Fyrirliði Eyjamanna, Kári Kristján Kristjánsson, skoraði tíu mörk þegar ÍBV laut í lægri hlut fyrir Íslandsmeisturum FH 33:30 í Kaplakrika í kvöld.
Eyjamenn byrjuðu leikinn af krafti og komust fjórum mörkum yfir í stöðunni 6:2 en þá fóru Hafnfirðingar í næsta gír og skoruðu 11 mörk gegn tveimur Eyjamanna. Mbl.is ræddi við Kára Kristján strax eftir leik og bað hann um að útskýra þennan viðsnúning:
„Við hefðum getað skorað sjöunda markið. Klúðrum víti og förum úr því að vera 6:2-yfir og lendum 13:8-undir. Þannig að sóknarleikurinn okkar hrynur á sama tíma og við erum í yfirtölu sex mínútur. Það er skelfilegt í ljósi þess að við erum að tapa í yfirtölum. Þannig að við förum hræðilega með yfirtöluna. Við erum því bara sanngjarnt undir í hálfleik.“
Þið náið samt að minnka muninn í fjögur mörk fyrir hálfleik og komið síðan í seinni hálfleikinn og minnkið muninn í tvö mörk. Hvað svo?
„Seinni hálfleikurinn er skömminni skárri. Eða við erum bara miklu betri í seinni hálfleik. Við förum í 5-1-vörn, Petar fer að verja á fullu en það er yfirtalan sem er að verða okkur að falli í kvöld.“
Þið skorið samt 30 mörk í þessum leik. Á það ekki að duga til að vinna handboltaleik?
„Duga og ekki duga. Miðað við hvernig þessi leikur er að þróast þá á þessi leikur að fara langleiðina með þetta en við erum með sjö tæknfeila í fyrri hálfleik. Það er ógeðslega dýrt. Það er víða pottur brotinn þó það sé stutt í góða hluti alls staðar. Það er samt stutt í góða hluti alls staðar. En við erum sjálfum okkur verstir í dag.“
Eyjamenn eru núna með einn sigur, eitt tap og eitt jafntefli. Næsti leikur er á móti Fjölni í Vestmannaeyjum. Það hlýtur að vera skyldusigur fyrir ÍBV gegn nýliðum deildarinnar eða hvað?
„Það er skyldusigur 100%. Við eigum að vinna Fjölni. Miðað við hvað við erum að láta í liðið okkar og miðað við hvað Fjölnir er að setja í liðið sitt þá eigum við að vinna Fjölni.“
Síðan kom Kári Kristján með yfirlýsingu:
„Ég tek það fram að í þessum leik þá mega allir hlutaðeigandi aðilar leiksins bæta sig. Ég endurtek: Það mega allir hlutaðeigandi aðilar leiksins bæta sig.“
Í stað þess að spyrja Kára nánar út í þessa yfirlýsingu þá spyrjum við frekar að því hvað þurfa Eyjamenn að laga í sínum leik fyrir leikinn gegn Fjölni eftir slétta viku?
„Við þurfum að bæta leik okkar i yfirtölunni,“ sagði Kári Kristján í samtali við mbl.is.