Gamla ljósmyndin: Gummersbach á Íslandi

mbl.is/Brynjar Gauti

Íþrótta­deild Morg­un­blaðsins og mbl.is held­ur áfram að gramsa í mynda­safni Morg­un­blaðsins og birta á mbl.is á laug­ar­dög­um. 

Þýska liðið Gummersbach heimsótti Ísland á dögunum með Guðjón Val Sigurðsson í brúnni og Elliða Snæ Vignisson í liðinu. Þýska atvinnumannaliðið vann sannfærandi sigur á FH í Kaplakrika í Evrópudeildinni í handknattleik. 

Gummersbach hefur komið nokkrum sinnum til Íslands. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Gummersbach mætti Val á Hlíðarenda í Meistaradeildinni 28. september árið 2007. 

Á myndinni er leikstjórnandinn Sigfús Páll Sigfússon kominn langleiðina í gegnum vörn Gummersbach en er stöðvaður aftan frá. Þar er á ferðinni enginn annar en Akureyringurinn Sverre Jakobsson, einn af silfurdrengjunum frá Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. Í baksýn er Valsarinn Elvar Friðriksson. 

Myndina tók Brynjar Gauti sem myndaði lengi fyrir Morgunblaðið og mbl.is. 

Sigfús Páll mætti Gummersbach raunar með tveimur íslenskum liðum í Evrópuleikjum. Hann var í liði Fram sem tók á móti Gummersbach í Laugardalshöllinni haustið 2006. Þá voru Guðjón Valur og Róbert Gunnarsson leikmenn Gummersbach og Alfreð Gíslason við stjórnvölinn. 

Félagaskipti Sigfúsar úr Fram yfir í Val á sínum tíma eru einhver þau umtöluðustu í sögu Íslandsmótsins enda gekk ekki lítið á milli félaganna meðan á því stóð. 

Sigfús Páll skoraði 2 mörk fyrir Val í leiknum og Elvar Friðriks skoraði 5 mörk. Róbert Gunnarsson var einnig í liði Gummersbach ásamt Sverre og skoraði Róbert 5 mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert