Báðir leikir Hauka á heimavelli

Rut Arnfjörð Jónsdóttir úr Haukum og Hildigunnur Einarsdóttir úr Val.
Rut Arnfjörð Jónsdóttir úr Haukum og Hildigunnur Einarsdóttir úr Val. mbl.is/Hákon

Kvennalið Hauka í handknattleik mun leika báða leiki sína við Galychanka Lviv frá Úkraínu í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins á heimavelli sínum á Ásvöllum í næsta mánuði.

Handbolti.is vekur athygli á því að Haukar spili báða leiki sína í næsta mánuði í Hafnarfirði. Fyrri leikurinn fer fram 11. janúar og sá síðari daginn eftir.

Valur tekur einnig þátt í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins og mætir þar Málaga Costa del Sol frá Spáni með hefðbundnum hætti.

Íslands- og bikarmeistararnir fara til Spánar og spila fyrri leikinn í Málaga þann 11. janúar og síðari leikinn viku síðar á Hlíðarenda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert