„Ég hætti í handbolta í lok apríl og hreyfði mig ekkert í rúmlega sjö mánuði,“ sagði handknattleiksmaðurinn fyrrverandi Sigfús Sigurðsson í Dagmálum.
Sigfús, sem er 49 ára gamall, er af mörgum talinn einn besti línumaður sem Ísland hefur átt en hann vann til silfurverðlauna með íslenska landsliðinu á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008.
Sigfús gekk óvænt til liðs við Emsdetten í þýsku B-deildinni í nóvember árið 2010 en Patrekur Jóhannesson stýrði þá þýska liðinu.
„Ég var staddur á Eskifirði, með þáverandi kærstunni minni, þegar ég sé færslu hjá Patta,um að hann sé að leita að línumanni því það séu allir meiddir hjá honum,“ sagði Sigfús.
„Ég fer að grínast í honum að ég geti komið og lokað vörninni hjá honum því ég væri orðinn svo feitur. Þetta tók einn og hálfan dag og þá var ég mættur upp í flugvél á leið til Þýskalands.
Ég var eins og sprunginn selur þegar ég mætti. Fyrir fyrsta leikinn var verið að kynna inn liðin og svo kemur að mér og þá heldur vallarþulurinn svaka ræðu. Hvað gerist eiginlega ef þetta klikkar segir Patti þá við mig,“ sagði Sigfús meðal annars.
Viðtalið við Sigfús í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.