Sænska goðsögnin verður þjálfari

Kim Andersson í leik gegn Valsmönnum.
Kim Andersson í leik gegn Valsmönnum. mbl.is/Árni Sæberg

Sænska handknattleiksgoðsögnin Kim Andersson verður aðstoðarþjálfari hjá liði sínu Ystad eftir að hann hættir sem leikmaður að yfirstandandi tímabili loknu.

Þetta staðfesti félagið í dag en Andersson, sem verður 43 ára á árinu, hefur leikið með Ystad  um árabil. 

Andersson lék fjöldann allan af landsleikjum fyrir Svíþjóð og var leikmaður hjá þýska stórliðinu Kiel frá 2005 til 2012. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka