Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, gerði sér lítið fyrir og skoraði 14 mörk fyrir Erlangen er liðið gerði jafntefli við Eisenach, 26:26, á útivelli í efstu deild Þýskalands í dag.
Fjórtánda og síðasta mark Viggós var einnig síðasta mark leiksins er hann tryggði sínu liði eitt stig á lokamínútunni.
Stórleikur Viggós gæti reynst dýrmætur því Erlangen er nú aðeins í fallsæti á markatölu en liðið er með 10 stig eftir 26 leiki.
Andri Már Rúnarsson skoraði fimm mörk fyrir fyrrverandi lið Viggós í Leipzig er liðið tapaði fyrir Flensburg á útivelli, 33:31. Rúnar Sigtryggsson faðir Andra þjálfar Leipzig, sem er í 14. sæti með 17 stig.