Þrjár landsliðskonur flúðu

Þrjár kúbverska landsliðskonur flúðu.
Þrjár kúbverska landsliðskonur flúðu. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Þrjár kúbverskar landsliðskonur í handknattleik flúðu eftir að landslið Kúbu tryggði sér sæti á HM í handknattleik eftir undankeppni sem fór fram í Mexíkó á dögunum. 

Samkvæmt 14ymedia yfirgáfu konurnar þrjár æfingasvæði kúbverska landsliðsins á fimmtudagsmorguninn 10. apríl. Voru þær keyrðar í burtu frá æfingasvæðinu og hefur ekkert spurst til leikmannanna. 

Kúba var búin að leika tvo leiki af fimm í undankeppninni áður en leikmennirnir flúðu. Þó tókst liðinu að vinna riðilinn. 

Leikmennirnir voru þær Naomis Mustelier, Islenia Parra og Nahomi Rodríguez. 

Þetta er ekki einsdæmi en oft og tíðum hefur kúverskt íþróttafólk komist í fréttirnar fyrir að flýja heimalandið vegna aðstæðna þarlendis. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert