Þurfum að gera allt enn betur en í kvöld

Óskar Bjarni fórnar höndum í kvöld er Þorgils Jón Svölu …
Óskar Bjarni fórnar höndum í kvöld er Þorgils Jón Svölu Baldursson fékk að líta rauða spjaldið. mbl.is/Eyþór

Valsmenn eru í góðum málum í undanúrslitaeinvígi sínu gegn Aftureldingu eftir sigur í framlengdum háspennuleik á Hlíðarenda í kvöld. Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals var að vonum ánægður með sigurinn. Spurður út í leikinn sagði Óskar Bjarni þetta:

„Við erum hrifnir af því að fara í framlengingar. Það er bara gaman. Þetta er úrslitakeppni og bara fjör. En miðað við hvernig seinni hálfleikur þróaðist þá fara þeir dálítið glaðir inn í klefann fyrir framlengingu og við dálítið sárir. Við erum að ná góðum tökum á leiknum og spilum frábæran sóknarleik í 7-10 mínútur. Sóknarleikurinn var mjög erfiður hjá okkur í fyrri hálfleik.

Óskar Bjarni ræðir við sína menn í kvöld.
Óskar Bjarni ræðir við sína menn í kvöld. mbl.is/Eyþór

Í framlengingunni lendum við í smá vandræðum og þeir komast tveimur mörkum yfir. Þeir voru aðeins með yfirhöndina þar í upphafi. Síðan eru þetta bara frábær lið og frábær skemmtun og þetta lenti okkar megin. Þetta er frábært í ljósi þess að úrslitin á móti Aftureldingu hafa ekki verið okkur hliðholl.

Fyrir þennan leik var staðan í viðureignum 7:1 fyrir Aftureldingu en er núna 7:2. Þannig að við þurfum að bæta okkur gagnvart Aftureldingu. Við eigum helling inni bæði í hraðaupphlaupum og í að hlaupa til baka. Við eigum líka Ísak inni sem kemur vonandi fljótlega til baka úr meiðslum.“

Hvað þarf til að vinna Aftureldingu í Mosfellsbæ?

„Við þurfum toppframmistöðu. Afturelding er frábært lið. Við þurfum stuðning í Mosfellsbæ. Afturelding er með frábæra stuðningsmannasveit en ég hef trú á að stuðningurinn muni vaxa núna með hverjum leiknum. Ég bjóst við örlítið fleirum í kvöld. En við þurfum toppleik og gera allt enn betur en við gerðum í kvöld,“ sagði Óskar Bjarni í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert