Lærisveinar Guðmundar Þórðar Guðmundssonar í Fredericiaunnu sannfærandi útisigur á Bjerringbro/Silkeborg, 36:25, í riðli-1 í úrslitakeppninni um danska meistaratitilinn í handknattleik í Silkeborg í dag.
Frederica er í öðru sæti með þrjú stig en Bjerringbro/Silkeborg er í fjórða og neðsta sæti án stiga.
Landsliðsmaðurinn Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði tvö mörk fyrir Fredericia en Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði fimm mörk fyrir Bjerringbro/Silkeborg.