Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen unnu dramatískan sigur gegn Suhr Aarau, 34:32, í tvíframlengdum leik í undanúrslitum úrslitakeppni um svissneska meistaratitilinn í kvöld.
Óðinn skoraði fimm mörk fyrir Kadetten sem er 1:0 yfir í einvíginu en það þarf þrjá sigra til að tryggja sér sæti í úrslitum.
Næsti leikur liðanna er á miðvikudaginn í Aarau.