Átta marka sigur og Afturelding jafnaði

Leikmenn Aftureldingar fagna sigrinum í leikslok í kvöld.
Leikmenn Aftureldingar fagna sigrinum í leikslok í kvöld. mbl.is/Karítas

Afturelding tók á móti Val í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta á Varmá í Mosfellsbæ í kvöld og lauk leiknum með sigri Aftureldingar 31:23.

Staðan í einvíginu er því því jöfn 1:1 en þrjá sigra þarf til að komast í úrslitaeinvígið gegn annaðhvort Fram eða FH. Þriðji leikurinn fer fram á Hlíðarenda á föstudagskvöldið.

Mosfellingar mættu dýrvitlausir til leiks í kvöld og gáfu sterklega til kynna að þeir ætluðu ekki að fara á Hlíðarenda 2:0 undir í einvíginu. Afturelding komst 3:1 yfir í leiknum og svo 4 mörkum yfir í stöðunni 8:4. Lengst af var munurinn þrjú mörk en mestur varð hann 6 mörk í stöðunni 16:10 sem reyndust hálfleikstölur í leiknum.

Blær Hinriksson skoraði 5 mörk í fyrri hálfleik fyrir Aftureldingu og varði Einar Baldvin Baldvinsson 6 skot. Brynjar Vignir Sigurjónsson varði 2 skot, þar af eitt víti.
Bjarni í Selvindi skoraði 3 mörk fyrir Val í fyrri hálfleik og varði Björgvin Páll Gústavsson 4 skot.

Seinni hálfleikur byrjaði allt öðruvísi en sá fyrri. Valsmenn komu einbeittir inn í seinni hálfleikinn og skoruðu 4 fyrstu mörkin og minnkuðu muninn í tvö mörk í stöðunni 16:14 áður en Ihor Kopyshynskyi skoraði fyrsta mark Aftureldingar í seinni hálfleik.

Birgir Steinn Jónsson úr Aftureldingu skýtur að marki Vals í …
Birgir Steinn Jónsson úr Aftureldingu skýtur að marki Vals í leiknum í kvöld. mbl.is/Karítas

Þá loksins komust Mosfellingar aftur í gang og náðu til baka því forskoti sem þeir höfðu byggt upp í fyrri hálfleik. Þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum var staðan 24:18 fyrir Aftureldingu og blésu allir vindar í þá átt að Afturelding næði að jafna einvígið enda Mosfellingar mun betri í kvöld.

Valsmenn reyndu öll brögðin í bókinni til að brjóta lið Aftureldingar á bak aftur en Mosfellingar á þeirra heimavelli er ekkert grín. Fór því svo að Afturelding vann gríðarlega mikilvægan sigur og jafnaði einvígið.

Liðin mætast aftur á Hlíðarenda á föstudag.

Blær Hinriksson skoraði 7 mörk fyrir Aftureldingu og Birgir Steinn Jónsson 6 mörk. Einar Baldvin Baldvinsson varði 13 skot og Brynjar Vignir Sigurjónsson 3 skot, þar af 2 vítaskot.

Bjarni í Selvindi skoraði 7 mörk fyrir Val og varði Björgvin Páll Gústavsson 9 skot.

Afturelding 31:23 Valur opna loka
60. mín. Valur tapar boltanum
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert