Valur tapaði fyrir Aftureldingu með átta marka mun í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta í kvöld.
Björgvin Páll Gústavsson markvörður Vals var ómyrkur í máli þegar mbl.is ræddi við hann og var spurður út í viðsnúninginn á leiknum í kvöld miðað við leikinn á Hlíðarenda á fimmtudaginn.
„Afturelding var miklu betri í dag. Við mættum kokhraustir og hrokafullir í þennan leik í dag. Það er aldrei í boði að fara með þannig hugarfar inn í leikina. Á sama tíma erum við að mæta frábæru liði Aftureldingar og mér sýnist bara á þeirra fasi að þeir ætli að vinna þetta einvígi. Þeir eru á einhverju flugi og líta vel út.
Þeir fagna hér í leikslok eins og þeir séu orðnir Íslandsmeistarar. Það verður erfitt fyrir okkur að koma til baka úr þessu. Þegar þú ert í þessu fyrir félagið þitt, sjálfan þig og stuðningsmenn þá getur þú ekki boðið upp á það að tapa með átta marka mun í undanúrslitum.“
Þið byrjið leikinn illa en þið komið inn í seinni hálfleik og skorið fyrstu fjögur mörkin og munurinn aðeins tvö mörk. Síðan um leið og þeir skora sitt fyrsta mark þá brotna Valsmenn aftur. Hvað veldur því?
„Það kostar bara mikla orku að vinna svona mun upp. Við töpuðum þessum leik á fyrsta korterinu. Það er hrikalega erfitt að koma sér í þá stöðu að tapa leik á fyrsta korterinu. Síðan eru þeir bara með gríðarleg gæði, góðan þjálfara og besta markmann deildarinnar.
Þá er erfitt að koma til baka. Þeir gerðu bara allt rétt í dag og voru klókir. Ef þú mætir ekki 100% á móti Aftureldingu þá bara taparðu, alveg sama hvort það sé hér í Mosfellsbæ eða á Hlíðarenda,“ sagði Björgvin Páll.
Þú talar um að það gæti orðið erfitt fyrir ykkur Valsmenn að koma til baka eftir svona stórt tap. Er einhver uppgjöf í Valsmönnum?
„Nei, alls ekki. Það er bara erfitt. Við erum hins vegar vanir að gera hlutina á erfiða vegu. Þeir hafa verið með tak á okkur undanfarið. Við þurfum að losa það tak.
Ég hélt það hefði tekist í síðasta leik en greinilega ekki. Manni líður pínu eins og maður sé með bakið upp við vegg þó að staðan sé bara 1:1,“ sagði hann.
Ég heyri á þér að þetta er ákveðið sjokk, þetta tap.
„Já klárlega. Við ætluðum að vinna þennan leik og fara með stöðuna 2:0 á Hlíðarenda. Það eru bara vonbrigði hvernig við komum til leiks. Við vitum að það er erfitt að koma hingað á þeirra heimavöll og ég er meira pirraður yfir því hvernig við mættum til leiks,“ sagði Björgvin Páll að lokum í samtali við mbl.is.