Óskar Bjarni Óskarsson var að vonum ekki ánægður með frammistöðu sinna manna í Val eftir átta marka tap gegn Aftureldingu í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta í kvöld.
Með tapinu er staðan í einvíginu 1:1 en næsti leikur liðanna er á Hlíðarenda næsta föstudag. Óskar Bjarni hafði þetta að segja um tapið í kvöld:
„Þeir voru örlítið betri og við örlítið verri en í síðasta leik. Þá varð þetta niðurstaðan. Við vorum alltaf hálfu skrefi á eftir varnarlega og þeir fengu endalaust af góðum skotum.
Það er eiginlega ekkert hægt að tala um, eða jú nokkrar góðar sóknir hjá okkur. Svo var það þessi kafli sem við náum þessu niður í tvö mörk sem var góður. Það vantaði svona smá að ná að setja þá undir aðeins meiri pressu.
Þeir voru bara klárlega betri í kvöld og skrefi á undan okkur. Það sem ég tek út úr þessum leik er þessi góði kafli í byrjun seinni hálfleiks og nokkrar góðar sóknir. Annað var bara alls ekki nógu gott.“
Ef við förum aðeins yfir kaflann í byrjun seinni hálfleiks þar sem Valur minnkar muninn í tvö mörk, þá var eins og eitthvað væri að fæðast hjá þínu liði. Síðan kemur það ekki. Hvað veldur því?
„Við erum bara sjálfum okkur verstir. Við erum óskynsamir í sóknum og í kjölfarið stöndum við ekki vel í vörninni og náum aldrei að komast yfir þennan hjalla sem hefði gert þetta að alvöru spennu.
Við reyndum að poppa þetta upp og kannski gerðum við það of seint en mér fannst við alltaf hafa trú þó að við værum 4-5 mörkum undir og mér fannst þetta voðalega lítið sem vantaði upp á að þetta yrði alvöru leikur,“ sagði hann.
Næsti leikur er á föstudaginn í Valsheimilinu. Hvað þurfa Valsmenn að gera betur þar?
„Við þurfum bara að fara yfir þennan leik og skoða frammistöðuna. Klárlega vilja bæði lið fara í úrslit og allt það. Við þurfum bara að gera miklu betur og mæta betur í leikinn og vera rétt stilltir.
Auðvitað vilja allir vinna og koma alveg á fullu en við náum aldrei að vera við í kvöld. Það þarf að laga. Við vorum bara mjög ólíkir okkur og ef við náum ekki að laga það þá getum við bara farið til Tenerife,“ sagði Óskar Bjarni að lokum í samtali við mbl.is.