Þurfum að vera tilbúnir í það stríð

Gunnar Magnússon ræðir við sína menn á hliðarlínunni í kvöld.
Gunnar Magnússon ræðir við sína menn á hliðarlínunni í kvöld. mbl.is/Karítas

Aftureldingu tókst að jafna undanúrslitaeinvígið gegn Val í Íslandsmóti karla í handbolta í kvöld með átta marka sigri.

Gunnar Magnússon þjálfari Aftureldingar var að vonum ánægður með frammistöðu sinna leikmanna þegar mbl.is ræddi við hann strax eftir leik.

„Allt önnur frammistaða hjá okkur í kvöld í samanburði við leikinn á fimmtudag. Valsmenn voru vissulega ekki eins góðir og þá en orkustigið hjá okkur var meira.

Varnarleikurinn hélt í 60 mínútur og við vorum miklu agaðri sóknarlega og kláruðum sóknirnar með skoti. Við komum okkur alltaf til baka og létum þá stilla upp í sókn sem er algjörlega nauðsynlegt á móti Val,“ sagði Gunnar.

Þessi sigur hlýtur að kveikja vel í vonum Aftureldingar um að komast í úrslitaeinvígið, ekki satt?

„Við vorum bara uppi við vegg. Að fara 2:0 undir í Valsheimilið er ekki vænleg staða og við vissum að við yrðum að svara þessu á heimavelli. Núna er staðan bara 1:1 og þetta eru tvö hörkulið. Þetta verður stál í stál þetta einvígi.

Núna þurfum við bara að vera fljótir að jafna okkur því við vitum að Valsmenn mæta miklu betri til leiks á föstudaginn. Við þurfum að vera tilbúnir í það stríð. Nú er það bara okkar að ná þessari frammistöðu oftar,“ sagði hann.

Afturelding hefur unnið áður í Valsheimilinu og þú kannt þá uppskrift. Hvað þarf í viðbót við þessa frammistöðu í kvöld svo það takist?

„Við förum yfir þennan leik og finnum einhverja punkta eins og alltaf. Þeir voru auðvitað margir eftir síðasta leik og kannski eitthvað færri núna en nú þarf ég bara að fara yfir það.

Við þurfum að vera tilbúnir að svara þeirra aðgerðum í næsta leik því þeir mæta tvíefldir. Við verðum bara að ná stöðugleika í þessari úrslitakeppni,“ sagði Gunnar í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert