Akureyringurinn leikur til úrslita

Aldís Ásta Heimisdóttir leikur til úrslita.
Aldís Ásta Heimisdóttir leikur til úrslita. Ljósmynd/Viktor Ljungström

Skara tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaeinvíginu um sænska meistaratitilinn í handbolta með sigri á Skuru, 22:18, í þriðja leik.

Skara vann einvígið 3:0 og mætir Höör eða Sävehof í úrslitum en þar er staðan 2:1 fyrir Sävehof.

Akureyringurinn Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði tvö mörk fyrir Skara í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert