Mjög ungur þegar hann skildi handbolta betur en ég

Jón hrósaði Snorra Steinni í hástert.
Jón hrósaði Snorra Steinni í hástert. mbl.is/Eyþór

Jón Halldórsson formaður HSÍ þekkir landsliðsþjálfarann Snorra Stein Guðjónsson afar vel. Jón þjálfaði Snorra í gegnum yngri flokka hjá Val og unnu þeir náið saman þegar Snorri var þjálfari Vals og Jón formaður handknattleiksdeildarinnar.

Nú eru þeir sameinaðir á ný hjá HSÍ.

„Ég þekki Snorra Stein og er búinn að þekkja hann síðan hann var lítill gutti. Ég þjálfaði hann í einhver sjö ár,“ sagði Jón við mbl.is. Hann áttaði sig snemma á því að Snorri gæti náð langt í íþróttinni.

Jón Halldórsson tók við sem formaður HSÍ í byrjun mánaðar.
Jón Halldórsson tók við sem formaður HSÍ í byrjun mánaðar. Ljósmynd/HSÍ

„Ég gerði mér fljótlega grein fyrir hversu mikinn skilning Snorri hafði fyrir handknattleik. Hann var mjög ungur þegar ég þjálfaði hann og líka mjög ungur þegar hann skildi handbolta betur en ég sjálfur.

Hann hefur eytt allri ævinni í að spá og spekúlera í handbolta. Hann er alinn upp í þannig umhverfi með pabba sínum Gaupa sem fylgist gríðarlega vel og er með þeim mönnum sem þekkja handbolta hve mest á Íslandi.

Að Snorri Steinn sé landsliðsþjálfari í dag kemur mér ekki á óvart. Vonandi verður hann sem lengst með okkur. Ég veit hann mun gera fleiri stóra hluti þegar kemur að handbolta. Ég hef mikla trú á Snorra Steini Guðjónssyni,“ sagði Jón.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert