Landsliðsmaðurinn með stórleik og í úrslit

Óðinn Þór Ríkharðsson átti stórleik.
Óðinn Þór Ríkharðsson átti stórleik. mbl.is/Eyþór

Óðinn Þór Ríkharðsson og samherjar hans í Kadetten tryggðu sér í dag sæti í úrslitum í baráttunni um svissneska meistaratitilinn í handbolta með stórsigri á Aarau í þriðja leik liðanna í undanúrslitum, 32:22.

Vann Kadetten einvígið 3:0 en liðið er deildarmeistari og líklegt í baráttunni um þann stóra.

Óðinn átti stórleik og var markahæstur hjá Kadetten með níu mörk. Skoraði hann mörkin níu úr aðeins tíu skotum.

Liðið mætir Kriens eða Bern í úrslitaeinvíginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert