Snýr aftur til uppeldisfélagsins

Ída Bjarklind Magnúsdóttir.
Ída Bjarklind Magnúsdóttir. Ljósmynd/Selfoss

Handknattleikskonan Ída Bjarklind Magnúsdóttir er gengin til liðs við uppeldisfélag sitt Selfoss á nýjan leik. 

Ída Bjarklind skrifar undir þriggja ára samning á Selfossi en hún kemur frá Víkingi úr Reykjavík. Ída lék þá einnig með Stjörnunni. 

Ída hefur leikið í gegnum öll yngri landslið Íslands og hefur verið meðal markahæstu leikmanna B-deildarinnar. 

„Ída er hávaxin skytta sem getur leikið bæði hægra og vinstra megin í sókninni. Þá er hún einnig öflug í vörninni,“ stendur meðal annars í tilkynningu Selfyssinga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert