Stórsigur Hauka í fyrsta leik

Lena Margrét Valdimarsdóttir sækir að vörn Hauka í dag.
Lena Margrét Valdimarsdóttir sækir að vörn Hauka í dag. mbl.is/Ólafur Árdal

Haukar unnu afar sannfærandi 12 marka sigur, 30:18, á Fram á útivelli í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í handbolta í Úlfarsárdal í dag.

Haukar byrjuðu með látum og komust í 10:4 snemma leiks. Fram gekk illa að minnka muninn og munaði sjö mörkum í hálfleik, 17:10.

Ekki gekk betur hjá Fram að minnka muninn í seinni hálfleik og var munurinn tíu mörk þegar hann var hálfnaður, 23:13.

Voru Framarar aldrei líklegir til að jafna eftir það og sannfærandi Haukasigur raunin.

Leikurinn var í beinni textalýsingu á mbl.is sem nálgast má hér fyrir neðan.

Fram 18:30 Haukar opna loka
60. mín. Elísa Helga Sigurðardóttir (Haukar) varði skot Enn ver Elísa.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert