Blomberg-Lippe sigraði Oldenburg, 29:26, í öðrum leik liðanna í undanúrslitum í úrslitakeppninni um þýska meistaratitilinn í handbolta í dag.
Andrea Jacobsen átti góðan leik fyrir Blomberg-Lippe og skoraði fimm mörk. Díana Dögg Magnúsdóttir gerði þrjú.
Blomberg-Lippe vann einvígið, 2:0, og er komið áfram í undanúrslit.