„Þeir tóku því af fagmennsku,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, um viðbrögð Bjarka Má Elíssonar og Sigvalda Bjarnar Guðjónssonar um að vera ekki valdir í landsliðið fyrir leikina við Bosníu og Georgíu í undankeppni EM í næsta mánuði.
Eru þeir báðir heilir heilsu og klárir í slaginn en Snorri ákvað að velja reynsluboltana ekki í hópinn að þessu sinni.
„Ég er alls ekki að biðja þá um að vera sammála mér. Þeir eru það ekki og eiga ekki að vera það. Ég útskýrði við Sigvalda hvað ég er að gera og hvað ég er að pæla og þar við situr.
Þetta er hluti af minni vinnu, að velja liðið, prófa mig áfram og reyna að þróa þetta lið. Þá þarftu að taka svona ákvarðanir. Það er ekki gaman en þetta er eitthvað sem þú þarft að gera. Ég hef ekki áhyggjur af þessum strákum.
Þetta eru frábærir leikmenn, sem eru frábærir í hópnum. Ég hef ekki yfir neinu að kvarta hjá þeim. Það kemur að því að ég þarf á þeim að halda og vel þá aftur. Þá reikna ég með þeim 100 prósent,“ sagði Snorri.
Hann ætlar að prófa hægri skyttuna Viggó Kristjánsson í hægra horninu og þá valdi hann Stiven Tobar Valencia í hópinn í staðinn fyrir Bjarka, þar sem hann er betri varnarmaður.
„Það er búið að blunda í mér að gera þetta með Viggó. Maður sér að Danirnir gera þetta ítrekað og við með Alexander Petersson og Ásgeir Örn. Þetta er stórmótapæling, þegar leikirnir eru orðnir margir. Ef ég get létt á Ómari Inga aðeins og gert það svona, þá vil ég skoða það. Eina leiðin til þess er í svona leikjum og svona gluggum,“ sagði hann um Viggó og hélt svo áfram um Stiven:
„Það hafa allir sína kosti og galla. Ég held ég sé ekki að móðga neinn þegar ég segi að Bjarki og Orri séu betri í að klára færin sín en Stiven. Það sem Stiven hefur fram yfir þá tvo er að geta spilað bakvörð. Hann gerir það með sínu liði og hefur gert með okkur.
Þetta er hlutur sem við verðum að geta skoðað. Aron og Elliði eru ekki með og Stiven mun spila bakvörðinn mikið þegar hann kemur inn á. Það verður ekki vesen fyrir Bjarka að labba inn í liðið á stórmóti ef þess þarf,“ sagði Snorri.