Þýski handboltamaðurinn Julian Köster, fyrirliði Íslendingaliðs Gummersbach, hefur samið við stórlið Kiel um að leika með því.
Samningur hins 25 ára gamla Kösters við Kiel er til fjögurra ára en tekur ekki gildi fyrr en sumarið 2026. Því mun þýski landsliðsmaðurinn spila í eitt tímabil til viðbótar með Gummersbach.
„Við vildum vitanlega halda fyrirliðanum okkar en við virðum ákvörðun hans. Það er samt ekki komið að kveðjustund strax.
Ég ætla að vera þakklátur fyrir árið sem við eigum eftir að verja saman í stað þess að svekkja mig,“ sagði Guðjón Valur í samtali við heimasíðu Gummersbach.
Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson eru leikmenn Gummersbach, sem er í níunda sæti þýsku 1. deildarinnar.