Íslendingaliðið í efstu deild

Arnór Þór Gunnarsson skilar Bergischer aftur í hóp þeirra bestu …
Arnór Þór Gunnarsson skilar Bergischer aftur í hóp þeirra bestu í Þýskalandi. Ljósmynd/Bergischer

Bergischer, undir stjórn Arnórs Þórs Gunnarssonar, fyrrverandi landsliðsmanns í handknattleik, hefur tryggt sér sæti í efstu deild Þýskalands á nýjan leik.

Bergischer vann í gær heimasigur á Ludwigshafen, 32:27, og náði með því ellefu stiga forskoti á Hüttenberg í þriðja sæti deildarinnar þegar  fimm umferðum er ólokið.

Þar með var liðið aðeins eitt ár í B-deildinni en Bergischer féll úr 1. deildinni síðasta vor. Tjörvi Týr Gíslason skoraði þrjú mörk í leiknum í gær en Arnór Viðarsson ekkert.

Bergischer er með 48 stig, Minden 39, Hüttenberg 37 og Balingen 35 stig í efstu sætunum en tvö efstu liðin komast upp í 1. deildina, sterkustu deild heims.

Daníel Ingason leikur með Balingen en hefur samið við ÍBV fyrir næsta tímabil.

Elmar Erlingsson skoraði tvö mörk í kvöld og átti fjórar stoðsendingar fyrir Nordhorn sem gerði jafntefli við Ferndorf á útivelli, 31:31. Nordhorn er í sjöunda sæti B-deildarinnar með 29 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert