Vænleg staða Hauka eftir nauman sigur

Elín Klara Þorkelsdóttir í leiknum í kvöld.
Elín Klara Þorkelsdóttir í leiknum í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Annar leikur Hauka og Fram í undanúrslitaviðureign liðanna í Íslandsmóti kvenna í handbolta fór fram á Ásvöllum í kvöld og lauk leiknum með sigri Hauka 25:24.

Staðan í einvíginu er því 2:0 fyrir Hauka en þrjá sigra þarf til að komast í úrslitaeinvígið gegn Val eða ÍR. Haukar þurfa því bara einn sigur til viðbótar til að vinna einvígið.

Jafnt var á með liðunum í fyrri hálfleik í dag þó Haukar hafi oftast verið skrefinu á undan. Munurinn var aldrei meiri en tvö mörk en var þó oftast bara eitt mark. Haukar voru í raun að mæta allt Fram liði en á laugardag því gestirnir gáfu ekkert eftir. Má því segja að bæði lið hafi mætt til leiks í kvöld.

Þegar 15 mínútur voru liðnar af leiknum var staðan 6:6 en Haukar fóru með eins marks forskot inn í hálfleikinn. Lítið var skorað í fyrri hálfleik sem stafar af því að markverðir liðanna voru að eiga fínan fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik 10:9 fyrir Hauka.

Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði 6 mörk í fyrri hálfleik fyrir Hauka og varði Sara Sif Helgadóttir 5 skot.

Hjá Fram var Valgerður Arnalds með 3 mörk í fyrri hálfleik en Darija Zecevic varði 7 skot.

Þrátt fyrir að Fram byrjaði seinni hálfleikinn þá tókst Haukum að skora fimm fyrstu mörkin og komast 6 mörkum yfir í stöðunni 15:9 sem var mesti munurinn til þessa. Fram skoraði sitt fyrsta mark í seinni hálfleik þegar um sjö og hálf mínúta var liðin af hálfleiknum.

Hildur Lilja Jónsdóttir brýst í gegn í kvöld.
Hildur Lilja Jónsdóttir brýst í gegn í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fram náði að minnka muninn í 2 mörk í stöðunni 15:13 áður en Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði sitt áttunda mark úr vítakasti og kom Haukum þremur mörkum yfir.

Restin af leiknum hjá Fram fór í að saxa niður forskot Hauka. Þegar 2:30 voru eftir var munurinn bara eitt mark í stöðunni 23:22 fyrir Hauka. Þegar ein mínúta var eftir af leiknum var staðan 24:23 fyrir Hauka og leikurinn galopinn. Haukar tóku leikhlé þegar 40 sekúndur voru eftir. Elín Klara fiskaði víti þegar 24 sekúndur voru eftir. Hún skoraði úr vítinu og tryggði Haukum sigurinn. Fram náði að minnka muninn þegar 10 sekúndur voru eftir en komust ekki lengra.

Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði 11 mörk fyrir Hauka, þar af 5 úr vítum. Sara Sif Helgadóttir varði 8 skot, þar af eítt vítaskot.

Alfa Brá Hagalín, Valgerður Arnalds og Lena Margrét Valdimarsdóttir skoruðu allar 5 mörk fyrir Fram. Darija Zecevic varði 10 skot.

Haukar 25:24 Fram opna loka
60. mín. Elín Klara Þorkelsdóttir (Haukar) skorar úr víti Elín Klara klárar þennan leik.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert